31/08/2026
Góðan dag! Nú byrjar taflan okkar alveg á morgun! Ég er búin að opna fyrir skráningar í allar íþróttir en það er samt sem áður frítt að æfa næstu 2 vikurnar svo það er ekki nauðsynlegt að skrá strax en auðvitað best að ganga frá strax ef börnin eru ákveðin 💙
Skráning fer fram hér : https://www.abler.io/shop/ungmennafelagid
Í abler appinu þarf að smella á myndina af ykkur sem er neðst í hægra horninu og fara þar í verslanir og markaðstorg og velja þar ungmennafélagið Víkingur, svo finniði rétta íþrótt og flokk og gangið frá greiðslu :)
Í abler er leikur einn að dreifa greiðslum og nýta frístundastyrkinn! Ef vantar aðstoð má alltaf hafa samband við Tinnu á [email protected].
Ungmennafélagið Víkingur
Finndu námskeið í vefverslun Ungmennafélagið Víkingur. Keyrt áfram af Abler
31/08/2026
ATH! Uppfærð tafla! Smá breytingar á sundinu sem byrjar á morgun 1.sept!
26/08/2026
Jæja þá er loksins hægt að birta töfluna okkar fyrir veturinn en hún kemur hér og er birt með fyrirvara um breytingar. ATH ég set inn tvö mismunandi form af töfluni, önnur er bara til að auðvelda foreldrum að skoða æfingatíma hvers flokks og íþróttar þar sem taflan er frekar troðin og gæti valdið ruglingi.
Fótboltinn byrjar í næstu viku skm töflu strax á mánudag, sund, blak og íþróttaskóli byrjar 1.sept. Það verður frítt að prufa allavega fyrstu 2 vikurnar og við auglýsum svo þegar við byrjum að taka skráningar.
Fótboltakrakkarnir hafa flokkaskipti strax á mánudag en þau klára samt sína leiki með sínum flokkum.
8. fl er 2021-2022 þjálfarar : Óli Hlynur og Leó Örn ásamt aðstoðarkrökkum
7. fl er 2019-2020 þjálfari: Hreinn Ingi ásamt aðstoðarkrökkum
6. fl er 2017-2018 Þjálfarar: Aron Gauti ásamt aðstoðarkrökkum
5.fl er 2015-2016 Þjálfarar: Aron Gauti- Leó Örn og Hreinn Ingi ásamt aðstoðarkrökkum
4.fl er 2013-2014 Þjálfara: Hreinn Ingi- Aron Gauti – Tomasz og Leó Örn
3.fl er 2011-2012 Þjálfarar: Aron Gauti- Tomasz og Hreinn Ingi
2. fl er 2008-2010 Þjálfarar: Tomasz – Aron Gauti og Hreinn Ingi
Aðstoðarkrakkar í vetur eru: Daði Þór- Steinar Henrý- Ægir Dór- Hekla Mist- Viktor Örn og Embla.
Blak fyrir 5.-7.bekk kk & kvk Þjálfari: Radek
Blak konur 8. Bekkur og eldri Þjálfari: Viðar Gylfa
Sund 2. -4. Bekkur Þjálfari: Helga Guðrún
Sund 5.-10.bekkur Þjálfari: Helga Guðrún
Íþróttaskólinn verður með breyttu sniði allavega fram að áramótum þar sem ekki fékkst þjálfari í það verða opnir tímar í íþróttahúsinu þar sem foreldrar geta mætt með börnunum sínum (leikskólaaldur og 1.bekkur) og tekið æfingu, sett upp þrautabraut eða bara sparkað í bolta saman, börnin eru alltaf á ábyrgð foreldra og salnum skal skilað hreinum og fínum eftir hvern tíma. Þessir tímar verða á föstudögum frá 14:10-14:50. Það kemur inn skráning fyrir þetta og gjaldið verður mjög sanngjarnt.
Í vetur vonumst við líka til að geta boðið upp á styttri námskeið í til dæmis frjálsum íþróttum og eða fimleikum, meira um það síðar.
Eins og sjá má verða æfingar á sunnudögum til að koma öllu fyrir og því miður eru engar rútuferðir um helgar.
Við erum spennt fyrir vetrinum og vonum að allir geti fundið sér eitthvað við hæfi. Frekari upplýsingar og fyrirspurnir má beina til Tinnu framkvæmdastjóra félagsins á [email protected].
19/08/2026
Þessu má endilega deila fyrir okkur💙
19/08/2026
Heimaleikur á Ólafsvíkurvelli kl 18!
Strákarnir þurfa á þínum stuðning að halda!💙
Ungmennafélagið grillar og selur hamborgara🍔
Sjáumst þar👏
16/08/2026
Leikmenn mánaðarins í júlí 2026 eru Hekla Mist í 4.fl kvk og Kristinn Freyr í 5.fl kk! Til hamingju krakkar💙